Jæja íbúðin var sannarlega hálfkláruð um jól 2014. Ég hef búið um mig í hálfri íbúðinni. Sett verður bráðabirgða lokun við endann á ganginum og þar með eldhús og stofa sem eru óklár lokuð af frá restinni af íbúðinni.
Það er bráðabirgða eldhúsaðstaða og stofa í öðru herberginu.
Ég hef ekki verið dugleg að uppfæra þessar framkvæmdir og á eftir að setja inn fullt af myndum af því sem hefur gerst í millitíðinni. En svona er staðan sem sagt.
Dvergasteinn
12. jan. 2015
29. maí 2014
Hlynur bróðir talaði við byggingarfræðing sem hann þekkir og fékk hann til að skoða málið og teiknaði hann upp íbúðina með þeim breytingum sem gera þurfti á burðarvirkinu. Það er hægt að hafa stofuna og eldhúsið svona opið með því að vera með stálbita og súlur og hluta af vegg.
Baðið verður ekki alveg nákvæmlega svona, baðkarið verður þar sem klósettið er. Engin sturta aukalega, wc við hliðina á baðkarinu og svo vaskur. Á hinum veggnum verður hægt að vera með einhverja skápa og hurðin inn í geymsluna verður áfram opin. Þessi teikning var samþykkt hjá byggingarfulltrúa og var þá hægt að hefjast handa við breytingarnar.
Næsta skref var að skoða teikningar af íbúðinni og rakst ég fljótt á að ekki voru til teikningar sem sýndu íbúðina eins og hún var í raun og veru. Til voru upphaflegar teikningar frá því húsið var byggt á fimmta áratugnum og sýndu þær tvær íbúðir í stað tveggja.
Ég sá engin not fyrir ganginn fyrir framan baðherbergið, sá enga ástæðu fyrir tvær stofur og vildi hafa opið eldhús með eyju. Þannig að önnur stofan yrði að svefnherbergi, baðið og herbergið við hliðina á því myndi sameinast annarri stofunni og ganginum fyrir framan baðið. Úr eldhúsinu yrði baðherbergi, geymslan þar inn af yrði stækkuð með því að taka vegginn niður og sameina geymsluna við ganginn fyrir framan.
Eins vildi ég fá hurð út í garð þar sem eitt sinn var inngangur fyrir aðra af tveim íbúðum. Með svalahurð norðanmegin við hlið eldhússins væri auðvelt að hlaupa út í bílskúr eftir einhverju í frystikistuna eða út í garð eftir kryddjurtum eða í grillið.
En það varð náttúrulega að kanna hvort þetta væri hægt tæknilega séð. Það er náttúrulega alltaf spurning um burðinn og burðarveggi. Svo þarf að fá leyfi hjá byggingarfulltrúa og allt það. Og svo varð náttúrulega að spá í kostnaðinn í leiðinni. Ég bara varð að vona að þetta yrði fræðilega mögulegt, ég vildi helst ekki breyta þessari hugmynd minni.
Leynivopnið var svo snillingurinn hann bróðir minn.
![]() |
| Svona er upprunalega teikningin |
![]() |
| Þeirri teikningu breytti ég til að sýna hvernig íbúðin var í raun og veru |
![]() |
| Svo teiknaði ég upp íbúðina eins og ég vildi hafa hana. |
Eins vildi ég fá hurð út í garð þar sem eitt sinn var inngangur fyrir aðra af tveim íbúðum. Með svalahurð norðanmegin við hlið eldhússins væri auðvelt að hlaupa út í bílskúr eftir einhverju í frystikistuna eða út í garð eftir kryddjurtum eða í grillið.
En það varð náttúrulega að kanna hvort þetta væri hægt tæknilega séð. Það er náttúrulega alltaf spurning um burðinn og burðarveggi. Svo þarf að fá leyfi hjá byggingarfulltrúa og allt það. Og svo varð náttúrulega að spá í kostnaðinn í leiðinni. Ég bara varð að vona að þetta yrði fræðilega mögulegt, ég vildi helst ekki breyta þessari hugmynd minni.
Leynivopnið var svo snillingurinn hann bróðir minn.
28. maí 2014
Íbúðin þurfti greinilega viðhalds við og höfðaði örugglega ekki til allra en svona leit þetta út þegar ég tók við henni. En hún var skráð sem 4 herbergja, tvö svefnherbergi og tvær stofur með bílskúr 166 fm í heildina. Skráningin var röng og er íbúðin rétt rúmlega 100 fm og bílskúrinn 32 fm. Það hefur verið leiðrétt hjá fasteignaskráningunni síðan.
Ástandið var sem sagt ekki sérlega gott á íbúðinni og hún sérkennilega sniðin, ekki alltof góð nýting á öllum þessum fermetrum að mínu mati. En ég sá möguleika og gerði tilboð með miklar breytingar í huga.
| Hér er forstofan |
| Séð inn í íbúðina frá forstofunni |
| Þegar komið er inn var eldhúsið á vinstri hönd |
| inn af eldhúsinu er gangur inn í þvottahús í sameign og geymsla þar inn af |
| Fyrra herbergið er vinstra megin þegar komið er inn ganginn |
| við hlið herbergisins er svo inngangur í aðra stofuna |
| Inn af þeirri stofu var svo hin stofan. |
| þar var leki og leit það ekki vel út. |
| við enda gangsins var svo seinna herbergið og baðið þar við hliðina á |
| baðherbergið var sæmilega stórt. |
| framan við herbergið og baðið var mjög breiður gangur og stór gluggi þar |
Ástandið var sem sagt ekki sérlega gott á íbúðinni og hún sérkennilega sniðin, ekki alltof góð nýting á öllum þessum fermetrum að mínu mati. En ég sá möguleika og gerði tilboð með miklar breytingar í huga.
Í mars 2014 nákvæmlega 11 árum eftir að ég keypti íbúðina í Fellsmúla 16, tók ég mig til og keypti stærri íbúð með bílskúr á Seltjarnarnesinu. Þá var drifið í því að selja Fellsmúlann og var gengið frá kaupum og sölu samdægurs þann 3 mars. Um leið var afhending beggja eigna. Búslóðin úr Fellsmúlanum var flutt með hraði inn í bílskúrinn því íbúðin var ekki íbúðarhæf alveg strax. Í skúrinn safnaðist svo saman hluti búslóðarinnar að norðan og fyllist hann smám saman. Fyrir norðan flutti ég svo í minna húsnæði með húsgögnum svo ég gat minnkað verulega við mig þar.
Nýja íbúðin mín er í húsi sem kallast Dvergasteinn og þaðan kemur titillinn. Framkvæmdirnar eru miklar, húsnæðinu er breytt algjörlega. Það eru margir sem vilja fylgjast með og spyrja reglulega um hvernig gengur og það er stundum erfitt að lýsa því og mig langar ekki að fara með þetta allt á Facebook svo ég ákvað að setja upp blogg um framkvæmdirnar.
Íbúðin mín er á neðstu hæðinni, smá niðurgrafin sunnanmegin en alveg á jarðhæð norðanmegin.
Það þarf að gera við húsið að utan líka. Litli kálfurinn er sameign, þar er þvottahús og geymslur.
Neðsta myndin sýnir þarna bílskúrana þrjá sem fylgja íbúðunum.
Lóðin er ágætlega stór og verður vonandi hægt að nýta sér í einhverja garðyrkju, en ekki í ár nú er bara hugsað um innviði hússins af minni hálfu.