28. maí 2014

Íbúðin þurfti greinilega viðhalds við og höfðaði örugglega ekki til allra en svona leit þetta út þegar ég tók við henni. En hún var skráð sem 4 herbergja, tvö svefnherbergi og tvær stofur með bílskúr 166 fm í heildina. Skráningin var röng og er íbúðin rétt rúmlega 100 fm og bílskúrinn 32 fm. Það hefur verið leiðrétt hjá fasteignaskráningunni síðan.
Hér er forstofan
Séð inn í íbúðina frá forstofunni



Þegar komið er inn var eldhúsið á vinstri hönd

inn af eldhúsinu er gangur inn í þvottahús í sameign og geymsla þar inn af
Fyrra herbergið er vinstra megin þegar komið er inn ganginn 

við hlið herbergisins er svo inngangur í aðra stofuna



Inn af þeirri stofu var svo hin stofan. 
þar var leki og leit það ekki vel út.


við enda gangsins var svo seinna herbergið
 og baðið þar við hliðina á

baðherbergið var sæmilega stórt. 

framan við herbergið og baðið var mjög breiður gangur og stór gluggi þar 

Ástandið var sem sagt ekki sérlega gott á íbúðinni og hún sérkennilega sniðin, ekki alltof góð nýting á öllum þessum fermetrum að mínu mati. En ég sá möguleika og gerði tilboð með miklar breytingar í huga.

Engin ummæli:

Skrifa ummæli